

Opnum íslenska heilbrigðis-
þjónustu á Spáni
Þúsundir íslendinga, aldraðir, öryrkjar og aðrir, dvelja langdvölum á Spáni.
Þessi hópur mundi vilja fá heimahjúkrun á Spáni og geta dvalið í öldrunar- og endurhæfingarplássi þar.
Vegna takmarkaðs framboðs á rýmum í íslenskum öldrunar- og endurhæfingarplássum og mikils álags á íslenska heilbrigðiskerfið, skorum við á félags- og húsnæðismálaráðherra, heilbrigðisráðherra og ríkistjórn Íslands að stuðla að því að bjóða íslendingum á Spáni upp á íslenska heimahjúkrun og í framtíðinni öldrunar- og endurhæfingarpláss á Spáni (sjá úttekt um hagkvæmni). Þetta mætti gera í nokkrum skrefum:
-
FYRSTA SKREFIÐ
Samþykkja að Sjúkratryggingum íslands verði gert heimilt að greiða fyrir heimahjúkrun eða vist í öldrunar- og endurhæfingarplássi á Spáni ef þess væri óskað (að uppfylltum ákveðnum skilyrðum).
-
NÆSTA SKREF
Setja upp tilraunaverkefni með 10-20 öldrunar- og endurhæfingarplássum á einum stað með íslensku starfsólki. Bjóða samhliða þessu til prufu upp á heimahjúkrun. Gefa þessu verkefni góðan reynslutíma þar til að farið væri í næsta skref.
-
LOKASKREFIÐ
Stefna að uppbyggingu á þjónustukjarna með annars vegar fyrir öldrunar- og endurhæfingarþjónustu á Torreviejasvæðinu á Spáni og samhliða því heimahjúkrun fyrir íslendinga á Spáni. Þetta gætu verið um 50-70 dvalar-, endurhæfinga- og hjúkrunarrými til 10 ára, sem rekin væru með íslensku fagfólki, sambærilegt og aðrar norðurlandaþjóðir hafa gert fyrir sitt fólk.

Hvers vegna ætti að skoða möguleika á að reka íslenska heilbrigðis þjónustu á Spáni?
-
Ódýrara húsnæði og lægri rekstrarkostnaður (sjá úttekt um hagkvæmni).
-
Lægri fæðiskostnaður og möguleiki á hollara fæði, svo sem aðgengi að nýju grænmeti og ávöxtum allt árið (sjá nánar).
-
Lægri lyfjakostnaður á Spáni en á Íslandi (sjá nánar).
-
Betri heilsa og betri lífsgæði vegna veðurfars í Torrevieja, minni lyfjataka og betri staða vegna gigtar og psoriasis (sjá nánar).
-
Möguleiki fyrir endurhæfingu sjúklinga, með tímabundinni dvöl í sólinni og hitanum á Spáni (sem íslenska ríkið myndi styðja).
-
Eldri íslendingar á Spáni telja að þeir séu félagslega virkari og hafi myndað sterkara félagslegt net heldur en þeir gætu á Íslandi. Þrátt fyrir versnandi heilsu og hreyfigetu með hækkandi aldri telji þeir betra fyrir sig að dvelja áfram á Spáni en á Íslandi, ef þjónusta væri fyrir hendi.
-
Uppbygging og rekstur íslenskrar heilbrigðis- og öldrunarstofnunar á Spáni mundi minnka álag og eftirspurn eftir dvöl á hjúkrunarheimilum á Íslandi og er hagkvæmari á hvern einstakling en á Íslandi.
-
Eru einhver norðurlönd að greiða fyrir hjúkrunarrými á Spáni fyrir sína landsmenn? Er íslensk heilbrigðisþjónusta á Spáni raunhæfur kostur fyrir Íslendinga? Geta Íslendingar sem búsettir eru á Spáni fengið íslenska heilbrigðisþjónustu í landinu í framtíðinni. (sjá nánar).
Umsagnir íslendinga sem búa á Spáni
-
Dvölin á Spáni hefur mikil jákvæð áhrif á heilsu, líkamlega og andlega.
-
Hlýtt loftslag og möguleg útivera dregur úr verkjum.
-
Fólk segist eiga alla sína vini á Spáni og í raun vera með allt sitt félagslega net þar.
-
Margir lýsa því hvernig gigt eða önnur veikindi hafi leitt þá til Spánar.
-
Mikill fjöldi telur það mjög góðan kost að eyða efri árum á Spáni.

Dæmi um norræn verkefni
- www.scandclinic.com
-
ScandClinic rekur heilsugæslustöðvar á Spáni, m.a. á Costa Blanca og Costa del Sol, og segir „All staff speak Swedish and English!“.
-
Þjónustan nær yfir almennan læknisskoðun, sýnatökur, heilbrigðispróf, og meðferðir fyrir krónísk veikindi.
-
Nordic Health Care auglýsir þjónustu 24/7, með læknum sem tala m.a. ensku, sænsku, frönsku, þýsku og spænsku. nordichealthcare.es
-
Þeir bjóða heimakalla, rannsóknir, bráðaviðbragð o.s.frv.
-
Nordic Medic Centre er einkarekinn heilbrigðisstofnun í Torrevieja með áherslu á norræna og alþjóðlega sjúklinga.
-
Markmiðið þeirra er að auðvelda heilbrigðisþjónustu fyrir norræna sjúklinga sem búa á Spáni eða heimsækja hana og vilja finna fyrir öryggi í gegnum allt heilbrigðissambandið.
Teymið á bak við IHAS
-
Gyða Ölvisdóttir lýðheilsu- og geðhjúkrunarfræðingur
-
Helga Vala Gunnarsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur
-
Hlynur Atli Sigurðsson rekstrarverkfræðingur
-
Guðmundur G. Hauksson samskiptaráðgjafi og markþjálfi gudmundur@gordon.is - www.virkadu.is - www.gordon.is



